Heilsueflandi hvatning fyrir starfsfólk

Heilsueflandi hvatning fyrir starfsfólk: Hvað virkar og hvað hefur öfug áhrif

Flest vilja bæta heilsuna en góður ásetningur endist sjaldan út annasama viku. Þess vegna nota margir vinnuveitendur umbun og viðurkenningu til að hvetja starfsfólk til að taka þátt í heilsueflingu og tileinka sér heilbrigðari venjur. Vel útfærð hvatning eykur þátttöku og áhuga. Sé illa að henni staðið getur hún sóað peningum eða jafnvel haft öfug áhrif. Hér er það sem virkar.

Hvað er heilsueflandi hvatning fyrir starfsfólk?

Heilsueflandi hvatning fyrir starfsfólk felst í umbun og viðurkenningu sem vinnuveitendur veita til að hvetja til heilbrigðra venja – eins og að hreyfa sig meira, sofa betur eða hlúa að geðheilsunni – og auka þátttöku í heilsueflingu. Að bjóða upp á umbun og viðurkenningu er ein áhrifaríkasta leiðin til að fá fólk með.

Hvernig tæknin hefur breytt heilsueflandi hvatningu

Snjallsímar, snjallúr og öpp hafa gjörbreytt heilsueflingu á vinnustöðum. Gögn og greiningar hjálpa vinnuveitendum að styðja betur við heilsueflingu og skráning gerir fólki auðvelt að sjá framfarir sínar og aðlaga venjurnar. Með appi eins og YuMuuv getur starfsfólk fylgst með eigin markmiðum og framförum samstarfsfólks – vinaleg keppni og gagnkvæm hvatning verða hluti af því sem drífur fólk áfram.

Hvernig hveturðu starfsfólk? 4 meginreglur

1. Veittu umbun strax

Rannsóknir sýna að umbun sem kemur strax stuðlar að meiri hegðunarbreytingu en umbun sem kemur síðar og að árangursrík verkefni bjóða upp á litla, áþreifanlega og tíða umbun. Áskorun sem stendur í heilt ár með einum verðlaunum í lokin hvetur mun minna en ný áskorun í hverjum mánuði þar sem tekið er eftir framlagi fólks og það verðlaunað mánaðarlega.

Pilt
happy

2. Nýttu hugrænt bókhald

Hugrænt bókhald lýsir tilhneigingu okkar til að meta peninga á mismunandi hátt eftir því hvaðan þeir koma eða til hvers þeir eru „ætlaðir“. Í reynd finnst fólki 50 $ umbun sem það vinnur sér inn í áskorun verðmætari en sama upphæð sem bætist við launin – hún er sérstakur vinningur, ekki bara hærri laun. Nýttu þetta með því að tengja umbunina við áskorunina sjálfa og láta fólk finna að það hafi unnið sér hana inn. Að úthluta umbun í hverjum mánuði án þess að nokkurrar fyrirhafnar sé krafist missir hins vegar fljótt merkingu sína.

3. Byrjaðu með litlum skrefum

Það sem þú áorkar á einum degi skiptir minna máli en það sem þú nærð á nokkrum mánuðum. Byrjaðu á einföldu markmiði sem er innan seilingar allra – til dæmis skrefaáskorun – og forðastu markmið sem eru óraunhæf fyrir marga. Manneskja sem gengur 3.000 skref á dag fær litla hvatningu af 10.000 skrefa markmiði strax á fyrsta degi.

4. Verðlaunaðu, ekki refsa

Sum telja að hótun um refsingu ýti fólki í átt að heilbrigðari ákvörðunum. Í raun skaðar refsing traust og lætur fólki líða illa. Fólk finnur fyrir mun meiri hvatningu þegar tekið er eftir litlum sigrum þess og þeim fagnað. Margir þættir móta hegðun – viðhorf, færni og meðvitund – og því krefst varanleg hegðunarbreyting yfirvegaðrar og jákvæðrar nálgunar.

Pilt
to clap hands

Tegundir heilsueflandi hvatningar

  • Fyrir þátttöku: viðurkenning eða lítil umbun fyrir að taka þátt.
  • Fyrir framfarir: umbun fyrir bætingu, til dæmis fyrir þann þátttakanda sem tekur mestum framförum.
  • Fyrir árangur: umbun fyrir að ná markmiði – helst útdráttur meðal allra sem ná því.
  • Félagsleg: sameiginleg upplifun fyrir teymið að lokinni sameiginlegri áskorun.
  • Óvænt: umbun sem er ekki tilkynnt fyrirfram og vekur spennu.
  • Frítími: aukafrídagur fyrir að ná markmiði.

Til að fá áþreifanlegar hugmyndir skaltu skoða 10 gjafahugmyndir til að sýna starfsfólki þakklæti og leiðbeiningar okkar um verðlaun í heilsueflingaráskorunum.

Pilt
jumping

Frá töflureiknum til nútímalegrar hvatningar

Heilsuefling á vinnustöðum hefur verið til í nokkra áratugi og eðli hennar hefur breyst mikið. Margir treysta enn á pappír, sameiginleg töflureiknisskjöl eða dýr og flókin kerfi. Þannig þarf það ekki lengur að vera: hreyfing samstillist sjálfkrafa, niðurstöður uppfærast í rauntíma og það tekur aðeins örfáar mínútur að veita fólki viðurkenningu.

Pilt
computer

Hvernig YuMuuv hjálpar

YuMuuv hjálpar þér að byrja smátt, halda stöðugleika og umbuna fólki á leiðinni. Þú getur sett raunhæf markmið, fylgst með framförum, veitt viðurkenningu fyrir góðan árangur og skapað reglulegan takt áskorana allt árið – sjáðu dæmi okkar um 12 mánaða heilsueflingaráætlun. Hvert fyrirtæki er einstakt og því getur áætlunin verið jafn einstök og fólkið þitt, með fyrirsjáanlegum kostnaði.

Algengar spurningar

1. Hvað er góð heilsueflandi hvatning fyrir starfsfólk?

Lítil og tíð umbun virkar best: gjafakort, heilsu- og hreyfibúnaður, sameiginleg upplifun, aukafrí og opinber viðurkenning. Útdráttur meðal allra sem ná markmiði hvetur fleiri en verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.

2. Virkar heilsueflandi hvatning í raun?

Hún getur aukið þátttöku verulega, sérstaklega þegar umbun kemur strax, er innan seilingar og fylgir viðurkenningu. Varanlegar breytingar verða þegar hvatning er sameinuð markvissri og reglulegri heilsueflingu.

Fáðu aðstoð við að útfæra hvatninguna

Viltu heilsueflingaráætlun sem er bæði hvetjandi og skemmtileg? Bókaðu kynningu og við hjálpum þér að láta hana verða að veruleika.