Besta appið fyrir heilsueflingaráskoranir
Skipuleggðu hvers kyns heilsueflingaráskorun sem teymið þitt óskar eftir. Sannreynd leið til að auka ánægju og þátttöku.
Verðlaunaður heilsueflingarvettvangur
Þess vegna velja fyrirtæki YuMuuv
Þátttaka sem kemur fólki á hreyfingu
„Fólk sendir myndir úr gönguferðunum sínum — yndislegum morgungöngum á ströndinni eða með hundana sína í garðinum. Þetta skapar svo jákvætt andrúmsloft og tengsl ... Þetta er virkilega orðið hluti af vinnustaðamenningunni okkar.“
Auðvelt í notkun fyrir alla
„Við vildum búa til áskorun sem auðvelt væri að taka þátt í ... Fólki finnst að þótt það geti ekki verið með samstarfsfólkinu séu þessi skref ekki gengin í einrúmi.“
Komum kyrrsetufólki á hreyfingu
„YuMuuv auðveldar fyrirtækjum með starfsemi í mörgum löndum og deildum um allan heim að skipuleggja heilsuáskoranir sem eru bæði skemmtilegar og krefjandi fyrir alla.“
Eflum heilsu starfsfólks
„YuMuuv hefur gefið okkur tækifæri til að kynna starfsfólkinu okkar heilbrigðari lífshætti á skemmtilegan og nýstárlegan hátt! Claus og teymið hans eru einstök og alltaf til staðar þegar okkur vantar hjálparhönd eða við viljum koma ábendingum á framfæri.“
Vertu með yfir 1.300 teymum frá leiðandi fyrirtækjum heims
Tegundir áskorana
YuMuuv safnar hreyfigögnum úr ýmsum snjalltækjum á einn vettvang, þar sem við greinum gögnin og gerum þau gagnleg og samanburðarhæf fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki.
Skrefaáskorun
Þátttakendur geta talið skrefin sem þeir taka á hverjum degi. Þetta er frábær leið til að fá alla með og auka þátttöku.
Svefnáskorun
Góður svefn stuðlar að vellíðan og afköstum starfsfólks. Því er tilvalið að skora á starfsfólkið þitt að sofa nóg og halda sér þannig hressu.
Plankaáskorun
Kyrrstöðuæfing fyrir kjarnavöðva sem hægt er að gera hvar sem er. Með henni auka þátttakendur stöðugleika og styrk líkamans.
Jógaáskorun
Tækifæri til að bjóða teyminu þínu heilsueflandi áskorun með jógastöðum, djúpri öndun og einbeitingu.
Hlaupaáskorun
Þessi tegund áskorunar gerir fyrirtækinu kleift að hvetja fólk til að hlaupa meira. Áskorunin getur miðast við bæði æfingatíma og vegalengd.
Áskorun í æfingatíma
Hér getur fyrirtækið skipulagt áskorun sem snýst um æfingatíma. Fyrirtækið getur ákveðið hvort skrá eigi tíma í ákveðinni tegund hreyfingar eða heildartíma í hreyfingu.
Gönguáskorun
Einfaldasta leiðin til að taka þátt í áskorun. Einnig er hægt að laga áskorunina að þörfum fatlaðs fólks svo að öll geti verið með.
Núvitundaráskorun
Þetta er hugleiðsluáskorun sem leggur áherslu á að vera til staðar í núinu og efla meðvitaða athygli. Gott tækifæri til að efla núvitund í teyminu.
Vatnsdrykkjuáskorun
Að drekka nóg af vatni er ein af grunnforsendum þess að líða vel. Vatnsdrykkjuáskorunin hjálpar starfsfólki að muna eftir því og stuðlar þannig að vellíðan.
Vegalengdaráskorun
Þátttakendur geta skráð vegalengdir óháð því hvernig þeir hreyfa sig. Til að auka hvatninguna geturðu tengt vegalengdarmarkmiðið við þekkta leið í raunheimum.
Hjólreiðaáskorun
Þetta er góð leið til að hvetja til fjölbreyttari ferðamáta. Hjólreiðaáskorunin getur miðast við bæði vegalengd og tíma.
Hreyfiáskorun
Vísindalega studd reikniformúla sem er hlutlægasta leiðin til að mæla hreyfingu. Hún leggur áherslu á áreynslu fremur en íþróttagetu, svo enginn upplifi sig út undan.
Bókalestraráskorun
Bókalestraráskorun hvetur þátttakendur til að lesa ákveðinn fjölda bóka innan tiltekins tíma.
Sundáskorun
Sundáskoranir hjálpa til við að efla gagnlega færni sem nýtist alla ævi. Með því að leyfa hjálpartæki má hvetja fleiri til að læra undirstöðuatriði sundsins.
Vellíðunarstigaáskorun
Vellíðunarstigakerfi er skipulagt verkefni þar sem þátttakendur vinna sér inn stig fyrir heilsutengdar athafnir með það að markmiði að stuðla að heilbrigðari venjum.
Áskorun í fjármálaskráningu
Áskorun í fjármálaskráningu hvetur þátttakendur til að fylgjast með og hafa stjórn á útgjöldum sínum yfir ákveðið tímabil til að efla fjármálalæsi og auka sparnað.
Bíllaus áskorun
Áskorun um bíllausa daga hvetur þátttakendur til að minnka kolefnisspor sitt með því að velja aðra ferðamáta í stað þess að aka á tilteknum dögum.
Sérsniðin áskorun
Í þessari tegund áskorunar velur þú sjálf hvaða virkni er í boði. Þetta er einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki til að leggja áherslu á athafnir sem tengjast fyrirtækjamenningunni beint.
Tæki sem eru studd
Helstu eiginleikar
Einfalt í notkun
Í boði á 50 tungumálum á vefnum, í App Store og Play Store, hannað til að vera auðvelt í notkun og hvetja til þátttöku.
Ótakmarkaðar áskoranir
Haltu ótakmarkaðan fjölda áskorana af öllum gerðum og stærðum og gefðu stjórnendum frelsi til að skapa eins fjölbreytta upplifun og þeir vilja.
Víðtæk samþætting við tæki
Full samhæfni við Apple Health, Google Fit, Garmin, Fitbit, Polar, Suunto, Android, iPhone, Apple Watch og Google Wear OS tryggir hnökralausa samstillingu gagna.
Verkfæri fyrir teymisstjórnun
Öflug verkfæri til að stofna, breyta og stjórna teymum, sniðin að því að bæta samhæfingu innan fyrirtækja og hópa.
Innbyggt spjall
Auktu þátttöku með eiginleikum eins og myndadeilingu og samskiptum í rauntíma í spjallinu sem styrkja tengsl milli notenda.
Ítarleg tölfræði og útflutningur gagna
Fáðu aðgang að ítarlegri greiningu og sérsniðnum skýrslum sem auðvelt er að búa til og sækja. Þær veita innsýn í virkni notenda og þátttöku í áskorunum.
Sérstakur tengiliður fyrir þig
Persónulegur stuðningur frá sérstökum tengilið sem aðstoðar við fyrstu skrefin og sinnir þörfum notenda til að tryggja sem besta upplifun.
Möguleikar á sammerkingu
Sérsníddu appið með vörumerki fyrirtækisins þíns, þar á meðal lógóum og forsíðumyndum fyrir áskoranir, til að styrkja ímynd fyrirtækisins.
Fljót og lipur þjónusta við viðskiptavini
Fáðu aðstoð sem hentar þínum þörfum í þjónustuveri okkar fyrir notendur, þar sem þú finnur ítarlegar leiðbeiningar og gagnlegt efni til að hjálpa þér.
YuMuuv uppfyllir kröfur GDPR, SOC 2 og WCAG 2.2 AA