Umbreyttu hreyfingu í skref
Máttur skrefanna
Skref hafa lengi verið almennur mælikvarði á líkamlega hreyfingu. Þau eru einföld, auðskiljanleg og skapa sameiginlegan grunn til að bera saman hreyfingu fólks óháð líkamsástandi. Hvort sem þú gengur um skrifstofuna, ferð í fjallgöngu eða dansar í stofunni er skrefafjöldi samræmd leið til að mæla það sem þú leggur á þig.
Þörfin fyrir sveigjanleika
Þótt skref séu frábær mælikvarði til að fylgjast með hreyfingu felur ekki öll hreyfing í sér skref. Margir stunda æfingar á borð við jóga, lyftingar eða sund sem er ekki hægt að telja beint í skrefum. Hér kemur umbreyting hreyfingar í skref að gagni og gerir heilsuáskoranir sveigjanlegri og aðgengilegri fyrir alla.
Brúum bilið
Umbreyting hreyfingar í skref snýst ekki um að koma í stað skrefa heldur að brúa bilið milli skrefaáskorana og annarrar hreyfingar. Hún tekur mið af því að ekki allir geta eða vilja einbeita sér eingöngu að skrefafjölda, og það er í góðu lagi. Markmiðið er að allir geti verið með á sínum forsendum og fái hvatningu til að hreyfa sig á sinn hátt.
Umbreytingartafla fyrir skref
| Hreyfing | Lítil ákefð* | Miðlungsákefð* | Mikil ákefð* |
|---|---|---|---|
| Þolfimi | 80 | 100 | 120 |
| Fimleikalistir | 80 | 100 | 120 |
| Aikido | 70 | 90 | 110 |
| Airsoft | 60 | 80 | 100 |
| Vatnsleikfimi | 70 | 90 | 110 |
| Bogfimi | 40 | 60 | 80 |
| Badminton | 60 | 80 | 100 |
| Ballett | 60 | 80 | 100 |
| Barre | 50 | 70 | 90 |
| Hafnabolti | 70 | 90 | 110 |
| Körfubolti | 90 | 110 | 130 |
| Strandblak | 70 | 90 | 110 |
| Billjard | 30 | 40 | 50 |
| Hjólreiðar | 70 | 90 | 110 |
| BodyPump | 80 | 100 | 120 |
| Brimbrettasund | 50 | 70 | 90 |
| Grjótglíma | 70 | 90 | 110 |
| Keila | 30 | 40 | 50 |
| Hnefaleikar | 110 | 130 | 150 |
| Hnefaleikar (á þungan poka) | 90 | 110 | 130 |
| Brasilískt jiu-jitsu | 70 | 90 | 110 |
| Æfingar með eigin líkamsþyngd | 60 | 80 | 100 |
| Kanóróður | 50 | 70 | 90 |
| Capoeira | 80 | 100 | 120 |
| Krikket | 60 | 80 | 100 |
| Skíðaganga | 75 | 95 | 115 |
| Crossfit | 110 | 130 | 150 |
| Krulla | 40 | 60 | 80 |
| Dans | 70 | 90 | 110 |
| Dýfingar | 30 | 40 | 50 |
| Frisbígolf | 40 | 60 | 80 |
| Skotbolti | 70 | 90 | 110 |
| Sporöskjutæki | 80 | 100 | 120 |
| Hestaíþróttir (hindrunarstökk) | 60 | 80 | 100 |
| Skylmingar | 60 | 80 | 100 |
| Skylmingar (höggsverð) | 60 | 80 | 100 |
| Veiði | 40 | 60 | 80 |
| Flaggfótbolti | 70 | 90 | 110 |
| Fluguveiði | 40 | 60 | 80 |
| Borðfótbolti | 30 | 40 | 50 |
| Fótbolti | 90 | 110 | 130 |
| Frisbí | 40 | 60 | 80 |
| Garðvinna | 40 | 60 | 80 |
| Golf | 40 | 60 | 80 |
| Fimleikar | 70 | 90 | 110 |
| Handbolti | 90 | 110 | 130 |
| Hatha-jóga | 30 | 40 | 50 |
| Hástökk | 80 | 100 | 120 |
| Gönguferðir | 70 | 90 | 110 |
| Hokkí | 85 | 105 | 125 |
| Hestaferðir | 60 | 80 | 100 |
| Íshokkí | 80 | 100 | 120 |
| Skautar | 70 | 90 | 110 |
| Hjólreiðar innandyra | 60 | 80 | 100 |
| Róður í róðrarvél | 80 | 100 | 120 |
| Fallhlífarstökk í vindgöngum | 60 | 80 | 100 |
| Jazzercise | 70 | 90 | 110 |
| Jiu-jitsu | 70 | 90 | 110 |
| Jöglun | 40 | 60 | 80 |
| Karaókísöngur | 30 | 40 | 50 |
| Karate | 90 | 110 | 130 |
| Kajakróður | 60 | 80 | 100 |
| Flugdrekabrettasiglingar | 80 | 100 | 120 |
| Krav Maga | 90 | 110 | 130 |
| Lacrosse | 80 | 100 | 120 |
| Skrúðganga með lúðrasveit | 60 | 80 | 100 |
| Minigolf | 30 | 40 | 50 |
| Fjallahjólreiðar | 75 | 95 | 115 |
| Stafganga | 60 | 80 | 100 |
| Rötun | 60 | 80 | 100 |
| Spaðatennis | 60 | 80 | 100 |
| Brettaróður | 50 | 70 | 90 |
| Litbolti | 60 | 80 | 100 |
| Parkour | 90 | 110 | 130 |
| Pilates | 60 | 80 | 100 |
| Borðtennis | 40 | 60 | 80 |
| Leikir með börnum | 50 | 70 | 90 |
| Hopp á hoppustöng | 60 | 80 | 100 |
| Súludans | 70 | 90 | 110 |
| Póló | 80 | 100 | 120 |
| Kraftlyftingar | 40 | 60 | 80 |
| Racketball | 70 | 90 | 110 |
| Racquetball | 70 | 90 | 110 |
| Listrænir fimleikar | 70 | 90 | 110 |
| Rúlluskautaat | 70 | 90 | 110 |
| Rúlluskautar | 60 | 80 | 100 |
| Klettaklifur | 90 | 110 | 130 |
| Þrautabraut í köðlum | 70 | 90 | 110 |
| Róður | 80 | 100 | 120 |
| Ruðningur | 90 | 110 | 130 |
| Hlaup | 100 | 120 | 140 |
| Siglingar | 50 | 70 | 90 |
| Köfun með loftkút | 40 | 60 | 80 |
| Skautaganga á skíðum | 75 | 95 | 115 |
| Hjólabretti | 60 | 80 | 100 |
| Skíðastökk | 80 | 100 | 120 |
| Skíðaiðkun | 75 | 95 | 115 |
| Jafnvægisganga á línu | 50 | 70 | 90 |
| Snóker | 30 | 40 | 50 |
| Yfirborðsköfun | 40 | 60 | 80 |
| Snjóbretti | 70 | 90 | 110 |
| Vélsleðaakstur | 60 | 80 | 100 |
| Spinning | 60 | 80 | 100 |
| Skvass | 90 | 110 | 130 |
| Stigaganga | 80 | 100 | 120 |
| Styrktarþjálfun | 40 | 60 | 80 |
| Teygjur | 30 | 40 | 50 |
| Brimbrettaiðkun | 60 | 80 | 100 |
| Sund | 80 | 100 | 120 |
| Borðtennis | 40 | 60 | 80 |
| Tai chi | 40 | 60 | 80 |
| Tennis | 70 | 90 | 110 |
| Frjálsar íþróttir | 90 | 110 | 130 |
| Trampólínhopp | 60 | 80 | 100 |
| Blak | 60 | 80 | 100 |
| Vökubretti | 70 | 90 | 110 |
| Ganga | 60 | 80 | 100 |
| Sundknattleikur | 80 | 100 | 120 |
| Lyftingar | 40 | 60 | 80 |
| Akstur í hjólastól | 80 | 100 | 120 |
| Jóga (rólegt) | 30 | 40 | 50 |
| Jóga (kraftmikið) | 80 | 100 | 120 |
| Zumba | 70 | 90 | 110 |
* skrefafjöldi á mínútu
Af hverju að umbreyta hreyfingu í skref?
1. Jafnar stöðu ólíkra hreyfiforma
Einn helsti kosturinn við að umbreyta hreyfingu í skref er að þannig sitja ólík hreyfiform við sama borð. Í hefðbundnum skrefaáskorunum teljast hjólreiðar eða sund ekki endilega með í skrefamarkmiðum og því getur fólki sem kýs þessa hreyfingu fundist það vera út undan. Með því að umbreyta hreyfingu í skref geta allir lagt sitt af mörkum í áskoruninni, svo hún verði sanngjörn og allir geti verið með.
2. Hvetur til fjölbreytni
Þótt skref séu góður mælikvarði getur það þrengt sýnina á hreyfingu að einblína eingöngu á þau. Sumir geta orðið svo uppteknir af því að ná ákveðnum skrefafjölda að önnur hreyfing situr á hakanum. Umbreyting hreyfingar í skref hvetur til fjölbreytni þar sem þátttakendur geta prófað ólíka hreyfingu og samt lagt sitt af mörkum í áskoruninni.
3. Persónuleg nálgun
Fólk hefur ólík markmið með þjálfun sinni. Sumir vilja auka þol en aðrir leggja áherslu á styrktarþjálfun eða liðleika. Með því að umbreyta hreyfingu í skref geta notendur valið þá hreyfingu sem hentar þeirra eigin markmiðum. Þessi sveigjanleiki viðheldur áhuga og hvatningu þátttakenda.
Svona er hreyfingu breytt í skref
Í YuMuuv er einfalt og auðvelt að umbreyta hreyfingu í skref. Svona virkar það:
-
Veldu hreyfingu: Þegar þú tekur þátt í heilsuáskorun geturðu valið úr fjölbreyttri hreyfingu í appinu. Þar er allt frá hefðbundinni hreyfingu sem er mæld í skrefum til jóga, lyftinga, sunds og fleira.
-
Skráðu tímalengd: Tilgreindu hversu lengi þú hreyfðir þig. Ef þú fórst til dæmis í 45 mínútna jógatíma skráirðu 45 mínútur.
-
Umbreyttu í skref: Reiknirit YuMuuv reiknar út samsvarandi skrefafjölda út frá tegund hreyfingar og tímalengd. Umbreytingin er hönnuð til að vera eins nákvæm og hægt er svo hún endurspegli framlag þitt á sanngjarnan hátt.
-
Leggðu þitt af mörkum: Skrefunum er svo bætt við heildarskrefafjöldann þinn í áskoruninni. Þannig geturðu fylgst með framförum þínum og séð hvernig hreyfingin sem þú velur hjálpar þér að ná heilsumarkmiðunum þínum.
Meira en skref: aðrar áskoranir
Þótt umbreyting hreyfingar í skref skipti sköpum fyrir marga veit YuMuuv að fjölbreytni gerir lífið skemmtilegra. Appið býður upp á fleiri gerðir áskorana til að mæta ólíkum heilsumarkmiðum og áhugasviðum.
1. Áskoranir byggðar á æfingatíma
Fyrir þá sem kjósa að fylgjast með tímanum sem fer í hreyfingu býður YuMuuv upp á áskoranir byggðar á æfingatíma. Hvort sem markmiðið er 150 mínútur af hreyfingu á miðlungsákefð á viku eða ákveðinn æfingatími á dag hvetja þessar áskoranir til reglulegrar hreyfingar án þess að þurfa að umbreyta henni í skref.
2. Áskoranir byggðar á hreyfivísitölu
Áskoranir byggðar á hreyfivísitölu nálgast vellíðan á heildrænan hátt með því að taka mið af fjölbreyttri hreyfingu og áhrifum hennar á almenna heilsu. Þátttakendur vinna sér inn stig eftir tegund og ákefð hreyfingarinnar, sem hvetur til jafnvægis og fjölbreytni í þjálfun.