Hvernig má auka starfshelgun

Hvernig má auka starfshelgun? 12 sannreyndar leiðir

Starfsfólk sem sýnir starfshelgun hvetur fólkið í kringum sig, skilar betri vinnu og styrkir orðspor þitt sem vinnuveitanda. Samt finnst mörgum þau ekki fá að taka þátt í ákvörðunum, að ekki sé hlustað á þau eða framlag þeirra metið að verðleikum. Slík vinnustaðamenning leiðir til kulnunar og stöðugrar þarfar fyrir nýráðningar. Góðu fréttirnar eru þær að hægt er að efla starfshelgun með markvissum hætti. Hér eru 12 sannreyndar leiðir til þess, allt frá trausti og viðurkenningu til vellíðunar og tengsla.

1. Hvað er starfshelgun?

Starfshelgun er sú tilfinningalega skuldbinding sem fólk finnur gagnvart starfi sínu, teyminu og markmiðum vinnustaðarins. Starfsfólk sem sýnir starfshelgun er ekki bara ánægt – því er annt um árangurinn og leggur meira á sig en ætlast er til.

2. 12 leiðir til að auka starfshelgun

1. Sýndu traust

Fjarvinna og sveigjanlegt vinnufyrirkomulag gera fólki kleift að skipuleggja sinn eigin vinnutíma. Samt stjórna margir stjórnendur enn hverju smáatriði og krefjast stöðugra stöðuuppfærslna. Það veldur streitu og tilfinningu um vantraust. Komið ykkur frekar saman um reglulega stöðufundi þar sem allir fá yfirsýn yfir verkefnin sem eru í gangi.

Pilt
Woman working

2. Gerðu fundi persónulegri

Fyrir fólk í fjarvinnu geta fundir verið einu félagslegu samskiptin við samstarfsfólk. Hafið kveikt á myndavélinni, farið ekki beint í vandamálin og prófið kaffipásur á netinu þar sem vinnutal er ekki leyft – í anda sænsku fika-hefðarinnar.

3. Tengdu starfið við tilgang

Fólk vill vita að starf þess skipti máli. Eins og Harvard Business Review bendir á ættu vinnuveitendur að sýna hvernig framlag hvers og eins styður við tilgang vinnustaðarins. Gerðu markmiðin skýr og sýndu hvaða hlutverki hver og einn gegnir í að ná þeim.

4. Láttu starfsfólk taka þátt í ákvörðunum

Að fá að taka þátt – jafnvel í litlum ákvörðunum – sýnir fólki að skoðanir þess skipti máli. Með því að leyfa starfsfólki að leggja til nýjar lausnir fær fyrirtækið líka ferska sýn og traust eflist.

Pilt
Meeting

5. Veittu reglulega viðurkenningu

Rannsóknir Gallup sýna að auðveldara er að halda í starfsfólk sem finnur að framlag þess er metið. Dragðu fram bæði góða teymisvinnu og framlag einstaklinga. Viðurkenning þarf heldur ekki alltaf að tengjast vinnunni – að fagna íþróttaafreki samstarfsfélaga getur hvatt aðra til að hreyfa sig meira.

Pilt
People doing high five

6. Fjárfestu í starfsþróun

Fjármagn til náms, handleiðsla og ný ábyrgð sýna fólki að það eigi framtíð hjá þér.

7. Efldu góða stjórnendur

Stjórnendur hafa mest áhrif á daglega starfshelgun. Þjálfaðu þá í að leiðbeina, veita endurgjöf og styðja við vellíðan.

8. Hlustaðu – og fylgdu því eftir

Leggðu reglulega fyrir stuttar kannanir til að taka stöðuna og bregstu sýnilega við því sem kemur fram. Fátt dregur jafnhratt úr starfshelgun og kannanir sem engu breyta.

9. Skapaðu hvetjandi vinnuumhverfi

Kynntu þér hvað starfsfólk þarf til að skila sínu besta og fylgstu með verkfærum sem auðvelda því lífið. Umfram allt snýst gott vinnuumhverfi um ánægt fólk: sameiginlegir hádegisverðir, borðspilamót eða hreyfiáskoranir hjálpa samstarfsfólki að tengjast og kynnast.

Pilt
Office fun

10. Styddu við heilbrigðar venjur og geðheilsu

Heilbrigt og úthvílt starfsfólk tekst betur á við streitu og er síður í hættu á að kulna. Geðheilsa skiptir líka máli: samkvæmt Mental Health Foundation er talið að 15% starfsfólks í Bretlandi glími við geðrænan vanda. Heyrðu reglulega í fólki og bjóddu stuðning. Vellíðunaráskoranir á vinnustað eru frábær leið til að hreyfa sig saman – sjáðu hvernig áskoranir styðja við geðheilsu teymisins.

Pilt
Together

11. Bjóddu sveigjanleika

Sveigjanlegur vinnutími og möguleiki á að blanda saman fjarvinnu og vinnu á staðnum hjálpa fólki að samræma vinnu og einkalíf – einn af þeim starfskostum sem fólk metur mest í dag.

12. Efldu tengsl milli teyma

Sameiginleg markmið brjóta niður múra milli teyma. Áskoranir fyrir teymi og allan vinnustaðinn gefa samstarfsfólki sem hittist sjaldan eitthvað að tala um – hér má sjá hvernig má nýta starfshelgun til að auka áhugahvöt og hvernig má efla starfshelgun fólks í fjarvinnu.

3. Hvernig má mæla starfshelgun?

  • niðurstöður starfshelgunar- eða eNPS-kannana
  • þátttaka í valfrjálsum viðburðum og áskorunum
  • starfsmannahald og fjarvistahlutfall
  • meðmæli starfsfólks með umsækjendum og stöðuhækkanir innan fyrirtækisins

Finndu fleiri mælikvarða í listanum okkar yfir lykilmælikvarða fyrir vellíðan.

4. Algengar spurningar

4.1. Hver er fljótlegasta leiðin til að auka starfshelgun?

Byrjaðu á að veita viðurkenningu og hlusta: þakkaðu fólki reglulega fyrir tiltekið framlag, óskaðu eftir endurgjöf og sýndu í verki að þú takir mark á henni.

4.2. Hvaða áhrif hefur vellíðan á starfshelgun?

Fólk sem líður vel hefur meiri orku, tekst betur á við streitu og er síður líklegt til að kulna – allt styður þetta við starfshelgun. Sameiginleg vellíðunarverkefni styrkja líka tengslin innan teymisins.

5. Efldu starfshelgun með YuMuuv

Vellíðunaráskoranir leiða samstarfsfólk saman, styðja við heilbrigðar venjur og sýna fólki að fyrirtækinu sé annt um það. Bókaðu kynningu og sjáðu hvernig YuMuuv getur hjálpað.