Stofnun liða fyrir notendur
Að stofna lið ef þú ert ekki með aðgang ennþá
Ef þú ert ekki með YuMuuv-aðgang geturðu stofnað þitt eigið lið við nýskráningu. Þegar þú hefur slegið inn skráningarkóðann og netfangið þitt og búið til lykilorð ferðu á næstu síðu. Þar geturðu slegið inn nafnið þitt og fundið hnappinn Stofna nýtt lið. Smelltu á hann og sláðu inn heiti liðsins til að stofna það. Síðan geturðu haldið áfram með nýskráninguna. Nú þegar liðið hefur verið stofnað geturðu boðið liðsfélögum þínum að ganga í það.
Að stofna lið ef þú ert þegar með aðgang
Ef þú ert þegar með YuMuuv-aðgang og vilt stofna lið skaltu fara í upplýsingarnar þínar (smelltu á prófílhringinn efst í hægra horninu og veldu Upplýsingarnar þínar). Skrunaðu niður að hlutanum Fyrirtæki & samfélög, þar sem þú finnur hnappinn Stofna nýtt lið. Smelltu á hann og sláðu inn heiti liðsins til að stofna það. Nú þegar liðið hefur verið stofnað geturðu beðið liðsfélaga þína um að ganga í það.
Ef þú lendir í vandræðum við að stofna lið skaltu hafa samband við okkur beint.